Fjögug og fróðleg helgi hjá fótboltakrökkum
Knattspyrnuakademía Tandrabergs og yngri flokka Fjarðabyggðar fór fram í Höllinni nú, á föstudag og laugardag. Alls mættu milli 150 og 160 börn til leiks, það er örlítil fækkun frá í fyrra, en nú setti veðrið nokkurt strik í reikninginn.
Akademían gekk mjög vel fyrir sig og stóðu þjálfara, fyrirlesarar og þátttakendur sig með sóma.
Yngri flokkar Fjarðabyggðar þakka öllum sem hönd lögðu á plóg sem og styrktaraðilum fyrir vel heppnaða Akademíu og skemmtilega helgi á Reyðarfirði.