Körfuknattleikslið Hattar byrjar tímabilið með krafti

 

Lið Hattar í körfuknattleik karla kemur sterkt til leiks í 1. deildinni í körfuboltanum, og hefur unnið tvo fyrstu leiki sína og tyllt sér á toppinn í deildinni, ásamt Hamri og Val.

Í fyrstu umferð fékk Höttur Þór Akureyri í heimsókn í Íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum og vann öruggan sigur, 100-83, fyrir fullu húsi áhorfenda.  Frisco Sandidge var stigahæstur í leiknum.

Síðastliðið föstudagskvöld sigraði Höttur ÍA á Akranesi  73-89. Höttur náði yfirtökunum strax í leiknum, var yfir 10-28 eftir fyrsta fjórðung og 36-44 í hálfleik.

ÍA byrjaði vel í seinni hálfleik og komst yfir, 45-44. Hattarmenn svöruðu með frábærum seinni hluta þriðja fjórðungs og voru 51-70 yfir að honum loknum. Sú forusta hélst til loka.

Frisco lét aftur verulega að sér kveða og setti niður 27 stig og tók 12 fráköst.

Liðið leikur sinn næsta leik gegn Val á fimmtudagskvöldið klukkan 18:30.

 

 

 

 

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ