,,Þórey Edda, verður þú aldrei lofthrædd þegar þú ert að svífa svona hátt uppí loftið?"
Um síðastliðna helgi stóð Frjálsíþróttaráð UÍA fyrir æfingabúðum á Egilsstöðum. Ríflega 30 frjálsíþróttakappar víðsvegar að af Austurlandi nutu þjálfunar og hlýddu á fyrirlestara undir stjórn Þóreyjar Eddu Elísdóttur og Guðmundar Hólmars Jónssonar.
Það er óhætt að segja að krakkarnir okkar hafi fengið spennandi innsýn inní æfingar og líf afreksfólks, sem hefur ýmsa fjöruna sopið í íþróttinni. En bæði eru þau Þórey og Guðmundur þrautreynt frjálsíþróttafólk, Þórey Edda hefur keppt fyrir Íslands hönd á ótal stórmótum svo sem EM, HM og Ólympíuleikum, hápunkti ferils síns náði hún á Ólympíuleikum í Aþenu er hún hafnaði í 5. sæti í stangarstökki. Guðmundur Hólmar á að baki langan ferli sem spjótkastari og hefur einnig keppt með landsliðinu víða um heim og náð góðum árangri. Hann sigraði til að mynda í spjótkasti á Evrópubikarmóti á Möltu 2010. Guðmundur þjálfar nú með Ármanni m.a. fjölþrautarkonuna knáu Helgu Margréti Þorsteinsdóttur.
Dagskrá helgarinnar gekk afar vel en þar skiptust á fjölbreyttar æfingar og fyrirlestrar um ýmis málefni tengd íþróttaiðkun s.s. mikilvægi hvíldar, svefns og mataræðis.
Á æfingum fengu krakkarnir að kynnast ýmsum nýstárlegum þjálfunaraðferðum og að sjálfsögðu kenndi Þórey Edda þeim undirstöðuatriði í stangarstökki. Þótti sumum nokkuð hátt farið þegar þau héngu á stöndinni og sveifluðust af kistu niður á dýnu. Af því tilefni var Þórey meðal annars spurð, af hjartans einlægni: ,,Þórey Edda verður þú aldrei lofthrædd þegar þú ert að svífa svona hátt upp í loftið?" Þórey Edda þvertók fyrir að finna fyrir lofthræðslu og sagði það vera einstaka tilfinningu að svífa um loftin blá....sérstaklega ef ráin hangir uppi.
Þórey og Guðmundur áttu aukaæfingu og spjall með Úrvalshópi UÍA og rædu við þau um mikilvægi þess að gefast ekki upp þótt á móti blási og að í íþróttum skiptist á skin og skúrir, en bæði hafa þau fengið að kynnast því og upplifað sinn skref af meiðslum á ferlinum.
Þórey og Guðmundur voru mjög ánægð frjálsíþróttakrakkana okkar sem þau sögðu hafa verið einkar áhugasöm, dugleg og að allir sem einn hefðu lagt sig fram og gert sitt besta. Aukin heldur komu þau auga á ýmsa efnilega frjálsíþróttagarpa sem gætu kveðið sér hljóðs á næstu árum.
Við þökkum Þóreyju Eddu og Guðmundi kærlega fyrir komuna, svo og öllum sem lögðu okkur lið við skipulagningu og framkvæmd æfingabúðanna.
Fleiri myndir úr æfingabúðunum má sjá hér.