Æfingabúðir í frjálsum íþróttum
Helgina 20.-21. október efnir Frjálsíþróttaráð UÍA til æfingabúða fyrir alla krakka 11 ára og eldri sem áhuga hafa á frjálsum íþróttum.
Von er á góðum gestum en þau Þórey Edda Elísdóttir stangastökkvari með meiru og Guðmundur Hólmar Jónsson sjá um æfingar og fyrirlestra.
Dagskrá æfingabúðanna er eftirfarandi:
Laugardagur 20. október.
10:30-12:00 Æfing Vilhjálmsvelli
12-12:45 Matur
13:00-15:00 Æfing í íþróttahúsinu á Egilsstöðum
15:30-16:30 Hressing og fyrirlestur á UÍA skrifstofu
Sunnudagur 21. október
9:30-11:30 Æfing Vilhjálmsvelli
11:45-13:15 Matur og fyrirlestur á UÍA skrifstofu
13:30-15:30 Æfing Vilhjálmsvelli
Að auki munu Þórey og Guðmundur halda sérstaka æfingu fyrir Úrvalshóp UÍA í frjálsum.
Þátttökugjald í æfingabúðunum er 2000 kr og skila þarf skráningu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sem fyrst.
Vonumst til að sjá sem flesta hressa frjálsíþróttakrakka.