Allt lagt í sölurnar á knattspyrnuvöllum hér eystra á morgunn
Tveir þýðingarmiklir knattspyrnuleikir fara fram hér eystra á morgunn, laugardag.
Höttur mætir Leikni Reykjavík í 1. deild karla í knattspyrnu á Vilhjálmsvelli á morgunn kl 14:00. Leikurinn er afar þýðingarmikill en með sigri geta Hattarmenn tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni.
Fjarðabyggð á einnig mikilvægan leik, á sama tíma á morgunn. En þá mætir liðið Aftureldingu á Eskifjarðarvelli. Fjarðabyggð á enn möguleika á að halda sæti sínu í 2. deild en til þess þurfa þeir að vinna báða leikna sem eftir eru og lið Gróttu að tapa báðum sínum.
Leiknir Fáskrúðsfirði á líka hörkuheimaleik kl 14:00 á laugardag en þá mæta þeir Magna í leik um þriðja sæti í þriðju deildinni.
Óskum við okkar mönnum á öllum vígstöðvum góðs gengis og hvetjum alla til að mæta og styðja sína menn. Hægt verður að fylgjast með leik Hattar í beinni útsendingu á vef Austurfréttar.
Meðfylgjandi mynd er fengin af vef Austurfréttar.