Í formi á Höfn
Nágrannar okkar á Hornafirði, standa haust hvert fyrir stórskemmtilegu íþróttamóti, Í formi sem ætlað 30 ára og eldri.
Keppt er í fótbolta, blaki, frjálsum íþróttum, golfi, badmintoni, bridge og brennibolta. Mótið fer fram um næstu helgi og enn er hægt að skrá sig.
UÍA á ótal vaskar kempur sem komnar eru yfir þrítugt og hvetjum við allar slíkar að fjölmenna á Hornafjörð.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins.