Fjölskyldan á Sandfell við Fáskrúðsfjörð

Næstkomandi sunnudag efnir UÍA til fjölskyldugöngu á Sandfell við Fáskrúðsfjörð, fjall UÍA 2012, í samstarfi við Leikni á Fáskrúðsfirði.

Lagt verður af stað frá bílastæðinu við fellið, sem stendur við þjóðveginn við brú á Víkurgerðisánni, kl 10:00. Guðrún Gunnarsdóttir og Eysteinn Friðbergsson gönguhrólfar leiða göguna.

Áætlaður göngutími er 5 klst, en áætlað er að æja í botni Fleinsdals, gæða sér á nesti og fara í leiki. Þar geta yngstu göngugarparnir og fylgdarmenn þeirra snúið við leggi þeir ekki í tindinn sjálfan.

Sandfell er sérstæður bergeitillinn 734 m hár og 600 m þykkur og er eitt besta sýnishorn frá tertíertíma á norðurhveli jarðar.

Sérstök Fjölskyldan á fjallið gestabók er á toppi fellsins en nú í haust dregur UMFÍ út heppna göngugarpa sem lagt hafa leið sína á fjöll sem tilheyra verkefninu Fjölskyldan á fjallið.

Göngugarpar eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og hafa með sér staðgott nesti.

Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu UÍA í síma 4711353 eða í tölvupósti á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Allir velkomnir.

 

 

 

 

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ