Launafl styður áfram bikarkeppni UÍA
Launafl verður áfram aðalstyrktaraðili bikarkeppni UÍA í knattspyrnu. Samkomulag þess efnis var undirritað fyrir skemmstu.
Það voru Magnús Helgason, framkvæmdastjóri Launafls og Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, sem undirrituðu samkomulagið.
Það tekur gildi þegar í stað en samkvæmt því mun keppnin bera nafn Launafls að minnsta kosti til ársins 2014.