Daði margverðlaunaður heim af Meistaramóti
Daði Fannar Sverrisson kom heim með fern verðlaun af Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem haldið var á Höfn í Hornafirði fyrir skemmstu.
Daði Fannar varð annar í sleggjukasti með kast upp á 42,71 metra og í spjótkasti þar sem hann kastaði 48,63 metra.
Hann hlaut einnig brons í kúluvarpi, þar sem hann varpaði kúlunni 11,98 metra og kringlukasti en það kast mældist 35,80 metrar.