50+ ekki á Norðfjörð

Umsókn UÍA um að fá að halda landsmót 50 ára og eldri í Neskaupstað árin 2013 eða 2014 fékk ekki brautargengi að þessu sinni.

Tilkynnt var um mótshaldara mótanna við setningu Unglingalandsmótsins á Selfossi á föstudagskvöld. Mótið 2013 verður í umsjá USVS í Vík í Mýrdal en á Húsvík á vegum HSÞ 2014.

Þá var tilkynnt að Unglingalandsmótið 2015 verður haldið á Akureyri í umsjá UFA.

Síðasta haust sótti UÍA einnig um að halda landsmót eldri ungmennafélaga á Norðfirði á þessu ári en það mót fór fram í Mosfellsbæ. Unglingalandsmótið á næsta ári verður haldið á Höfn í Hornafirði og 2014 á Sauðárkróki. Landsmót UMFÍ verður einnig haldið á Selfossi á næsta ári.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ