Fyrsta Enduro CC keppnin á Austurlandi
Aksturíþróttafélagið START heldur um helgina fimmtu og sjöttu umferð Íslandsmótsins í Enduro CC mótorhjólaakstri. Keppnin hefst 11:20 á laugardagsmorgun í landi Stóra Steinsvaðs, um 20 kílómetra utan við Egilsstaði.
Mikill hugur er í START mönnum sem segja að nýja mótorkrossbrautin sem sett var upp í landi Mýness fyrir Unglingalandsmótið hafi skipt starfið miklu máli. Þar er nú hjólað kvöld eftir kvöld og aukinn kraftur færst í mótorkrossstarfið. Keppnin um helgina endurspegli það.