Samæfing í frjálsum fyrir Unglingalandsmót

Frjálsíþróttaráð UÍA stendur fyrir samæfingu í frjálsíþróttum á Vilhjálmsvelli mánudaginn 30. júlí klukkan 17:00. Æfingin er meðal annars ætluð til þess að hrista hópinn saman fyrir Unglingalandsmótið á Selfossi eftir rúma viku.

Elsa Guðný Björgvinsdóttir, formaður frjálsíþróttaráðs, verður yfirþjálfari á æfingunni. Hún er öllum opin án endurgjalds.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ