Launaflsbikarinn: UMFB á toppinn eftir miklar sviptingar
Lið Ungmennafélags Borgarfjarðar er komið í efsta sæti Launaflsbikarsins eftir miklar sviptingar. Staðan breyttist verulega eftir að Spyrnir dró úr leik um síðustu helgi. Tvær umferðar eru eftir og ljóst að baráttan verður æsileg.
Sigur Borgfirðinga á Boltafélagi Norðfjarðar á Borgarfirði í síðustu vikur var leikurinn sem kom Borgfirðingum á toppinn. Það styrkti stöðu þeirra þegar Spyrnir mætti ekki til leiks gegn Hrafnkeli Freysgoða á sunnudag og dró sig úr leik.
Þar með voru allir leikir Spyrnis í mótinu dæmdir þeim tapaðir 0-3. Það þýddi að UMFB og Hrafnkell/Neisti græddu tvö stig þar sem liðin höfðu bæði gert jafntefli við Hrafnkel á heimavelli sínum. Breytingin hafði engin áhrif á stigatölu BN sem hafði unnið Spyrni á Fellavelli.
Vegna brottfalls Spyrnir styttist mótið og eru nú aðeins tvær umferðar eftir. UMFB tekur á móti Þristi á laugardaginn í Bræðsluleiknum og síðan mætast Hrafnkell/Neisti og BN.
Síðasta umferðin verður leikin miðvikudaginn 1. ágúst. UMFB tekur þá á móti Hrafnkeli/Neista og BN heimsækir Þrist.