Tour de Ormurinn: Hjólakeppni í kringum Lagarfljótið

UÍA, í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtækið Austurför og með stuðningi Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps, stendur fyrir hjólreiðakeppninni Tour de Ormurinn sunnudaginn 12. ágúst. Boðið verður upp á 68 og 103 km leiðir.

Keppendur verða ræstir úr Hallormsstaðarskógi klukkan 9:00 að morgni og hjólað verður þaðan út í Egilsstaði, norður yfir Fljót, upp Fellin og inn í Fljótsdal. Þar velja menn um lengri eða styttri hring en endamarkið verður í Hallormsstaðarskógi.

Umhverfis Orminn langa sem er 68 km hringur en þá er farið yfir nýjustu brúna yfir Jökulsá í Fljótsdal, neðan við Hjarðarból (utan við Hengifoss). Fyrstu tæplega 40 km eru á bundnu slitlagi, síðan tekur við um 20 km malarvegur og loks endað á klæðningu.

Þessari vegalengd verður hvoru tveggja hægt að taka í einstaklingskeppni og liðakeppni. Í liðakeppni keppa þrír saman í liði og er hringnum þá skipt í þrjá leggi um 26 km, um 24 km og um 20 km.

Hörkutólahringurinn sem er 103 km hringur, farin sama leið og í styttri hringnum, þar til kemur að ,,nýju” brúnni yfir Jökulsá í Fljótsdal, þá er haldið áfram inn Norðurdal og farið yfir innstu brú yfir Jökulsá í Fljótsdal, (9 km kafli á grófum malarvegi) og haldið áleiðis út Fljótsdal og út í Hallormsstaðaskóg (um 8 km á malarvegi og svo bundið slitlag síðustu 5 km). Eingöngu er boðið uppá einstaklingskeppni í þessari vegalengd.

Keppnin er hluti af Ormsteiti og verður líf og fjör í Hallormsstaðaskógi þegar keppendur koma í mark.

Ræst verður kl 9:00 á sunnudagsmorgni en kl 8:15 verður fundur við rásmark með keppendum þar sem farið verður yfir leiðina, öryggisráðstafanir og aðra þætti keppninnar.

Fljótsdalshreppur gefur glæsileg verðlaun fyrstu þremur keppendum í hvorum flokki, svo og fyrsta liði í hvorum flokki. Auk þess sem skemmtileg útdráttarverðlaun verða veitt heppnum þátttakendum. Allir keppendur fá þátttökupening í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna.

Skráning á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. þar þarf að koma fram: Nafn, kennitala og heimilsfang keppenda, netfang og símanúmer í hvaða vegalend keppandi ætlar.

Lið þurfa að senda inn upplýsingar um nöfn, kennitölur og heimilsföng, netföng og símanúmer allra liðsmanna, og tilgreina einn tengilið liðsins.

Skráningargjöld eru:

Umhverfis orminn langa 68 km einstaklingskeppni, 1000 kr

Umhverfis orminn langa 68 km liðakeppni 3000 kr á lið

Hörkutólahringurinn 103 km, 2000 kr.

Keppt verður í flokkum karla og kvenna og er lámarksaldur keppenda 14 ára.

Í liðakeppni er einnig keppt í opnum flokki, þ.e. lið mega vera blönduð jafnt sem lið karla og lið kvenna.

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa UÍA í síma 4711353 eða í gegnum tölvupóst This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Hægt er að fylgjast með helstu fréttum af keppninni á Facebook-síðu hennar.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ