Tvenn verðlaun á MÍ 11-14 ára
Keppendur UÍA unnu til tvennra verðlauna á Meistaramóti Íslands 11-14 ára í frjálsíþróttum sem fram fóru á Laugadalsvelli í lok júní.
Helga Jóna Svansdóttir varð önnur í 100 metra hlaupi stúlkna 14 ára á tímanum 13,38 og Daði Þór Jóhannsson varð annar í 800 hlaupi pilta 12 ára á tímanum 2:38,12.
Helga Jóna keppir fyrir Hött en Daði fyrir Leikni Fáskrúðsfirði. Að auki tóku Mikael Máni Freysson og Jóhanna Malen Skúladóttir, Þristi, þátt í mótinu og náðu ágætum árangri þótt ekki kæmust þau á verðlaunapall.
Þjálfari hópsins var Lovísa Hreinsdóttir.