Sumarhátíð 2012: Úrslit í frjálsum
Um 190 þátttakendur tóku þátt í Nettómótinu í frjálsíþróttum sem fram fór á Sumarhátíð UÍA um síðustu helgi. Eins og undanfarin ár hampaði Höttur stigabikarnum í bæði yngri og eldri flokki í frjálsum íþróttum. Ásinn og Þróttur Neskaupstað veittu Hattarfólki harðasta samkeppni.
Það voru tveir ellefu ára keppendur úr Hetti sem hömpuðu afreksbikurum einstaklinga. Halla Helgadóttir fyrir að stökkva 4,07 í langstökki og Elís Alexander Hrafnkelsson fyrir að stökkva 3,99 í langstökki.