Sumarhátíð 2012: Keppnisgreinum fjölgað í frjálsum
Tveimur keppnisgreinum hefur verið bætt við í flokkum 16-17 ára og 18 ára og eldri á Nettómótinu í frjálsíþróttum á Sumarhátið vegna fjölda áskorana. Boðið verður upp á keppni í þrístökki og hástökki. Við minnum á að skráningarfrestur rennur út á miðnætti á fimmtudagskvöld.