Sumarhátíð 2012: Knattspyrnumót
Knattspyrnumót Sumarhátíðar fer fram á efra svæðinu við Vilhjálmsvöll laugardaginn 7. júlí klukkan 13:00. Boðið verður upp á keppni í blönduðum liðum í sjötta, sjöunda og áttunda flokki.
Ekkert fast gjald er á lið heldur borga keppendur 2.000 krónur og geta þá tekið þátt í eins mörgum íþróttagreinum á hátíðinni og þeir vilja. Skráningarfrestur er til miðnætti fimmtudagsins 5. júlí.
Skráning og nánari upplýsingar eru hjá aðildarfélögum eða skrifstofu UÍA á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 471-1353.