Sumarhátíð 2012: Nettómótið í frjálsíþróttum
Nettómótið í frjálsíþróttum á Sumarhátíð verður á Vilhjálmsvelli 6. - 8. júlí 2012. Sextán ára og eldri keppa á föstudagskvöld, 11-16 ára laugardag og sunnudag og tíu ára og yngri á sunnudag.
Keppnisgreinar og aldursflokkar:
16 ára og eldri: Kúla, kringla, spjót, 100m, 800m og langstökk. Keppnin í þessum aldursflokki mun fara fram á föstudagskvöldinu og hefjast klukkan 18:30
14-15 ára: Kúla, kringla, spjót, 100m, 200m, 800m, langstökk, þrístökk, hástökk og boðhlaup.
12-13 ára: Kúla, kringla, spjót, 80m, 200m, 600m, langstökk, þrístökk, hástökk og boðhlaup.
11 ára: Kúla, spjót, 60m, 200m, 600m, langstökk, hástökk og boðhlaup.
10 ára og yngri: Langstökk, 60m, boltakast. 9-10 ára hlaupa auk þess 600m en 8 ára og yngri 400m.
Öll boðhlaup verða á sunnudegi. Tímaseðill verður birtur eftir helgi.
Skráning og nánari upplýsingar fást hjá aðildarfélögum UÍA eða skrifstofu sambandsins í síma 471-1353 eða netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Skráningarfrestur er til miðnætti fimmtudaginn 5. júlí. Skráningagjöld eru 2000 krónur á keppanda, óháð fjölda greina á hátíðinni.