Meistaramót í sundi: Úrslit og myndir
Liðsmenn Hattar hömpuðu stigabikarnum á meistaramóti UÍA í sundi sem fram fór á Eskfirði fyrir skemmstu. Mótið gekk hratt fyrir sig enda keppendur fremur fáir þar sem engir Neistamenn áttu heimangengt.
Hattarmenn fengu 330 stig, heimamenn í Austra 268 stig og Þróttarfólk 234 stig.
Húbert Henry Wojtas fékk afreksverðlaun í flokki 11-12 ára sveina, Nanna Björk Elvarsdóttir í flokki 11-12 ára meyja, Nikólína Dís Kristjánsdóttir í flokki 13-14 ára telpna og Hekla Lív Maríasdóttir í flokki 15-17 ára súlkna.