Myndir og úrslit af fyrsta móti HEF og UÍA
Fyrsta mótið í mótaröð UÍA og Hitaveitu Egilsstaða- og Fella í frjálsíþróttum fór fram á Vilhjálmsvelli í síðustu viku. Á þriðja tug keppenda var þar skráður til leiks. Keppt var í kúluvarpi, þrístökki og 200 metra hlaupi.
Mótaröðin er stigakeppni og fá stigahæstu einstaklingarnir í hverjum flokki verðlaun í lok sumars. Í myndasafninu má sjá myndir frá mótinu og úrslitin eru komin inn á mótaforrit FRÍ.