Meistaramót í sundi
Meistaramót UÍA í sundi verður haldið í sundlauginni á Eskfirði á laugardag. Flestir bestu sundmenn UÍA mæta þar til leiks. Keppni hefst klukkan 10:00. Við sama tækifæri verða afhentir styrkir úr vorúthlutun Spretts, styrktarsjóðs UÍA og Alcoa.
Liðsstjórafundur verður klukkan 9:00 og upphitun keppenda hefst 9:30. Afhending Sprettsstyrkjanna verður 13:00.