UÍA í fyrsta sæti í Hjólað í vinnuna
Lið UÍA varð í fyrsta sæti í keppni fyrirtækja með 3-9 starfsmenn í átaki ÍSÍ Hjólað í vinnuna sem lauk í síðustu viku.
Keppt var í fjölda daga og fóru allir þrír liðsmennirnir gangandi til og frá vinnu eða í vinnutengdar ferðir alla keppnisdagana þrettán. Sjö önnur lið deildu fyrsta sætinu með UÍA.
Alls ferðaðist UÍA liðið 527 kílómetra þessa daga. Hildur Bergsdóttir, framkvæmdastýra UÍA, tók við verðlaunum fyrir hönd liðsins síðastliðinn föstudag.