Öxi 2012

UMF Neisti ásamt Djúpivogshrepp og fleiri dyggum stuðningaðilum standa fyrir Öxi 2012, sem er þríþrautarkeppni, verður haldin í fyrsta skipti í ár dagana 30. júní  og 1. júlí á Djúpavogi.  Þríþrautin sjálf fer fram laugardaginn 30. júní.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:

Föstudagur 29. júní kl. 20:00

Ferðafélag Djúpavogs verður með stutta kynningargönguferð um bæinn og næsta nágrenni.

Laugardagur 30. júlí kl. 10:00

Þríþraut:
750 m sjósund         Synt af Staðareyri suður yfir Berufjörð.
13 km hjólreiðar      Inn Berufjarðardalinn og uppá Öxi.
19 km hlaup            Yfir í Fossárdal og að Eyjólfsstöðum 
18 km hjólreiðar      frá Eyjólfsstöðum á Djúpavog

Þrír aðilar geta keppt saman, þá  þannig að einn syndir, einn hjólar og einn hleypur. Samanlagður tími keppenda í greinunum ræður úrslitum. Keppnisnúmer verða afhent við upphaf sundsins. 

Keppendum er skylt að synda í blautbúningi og er búningsaðstaða til staðar að loknu sundi.

Athugið að nota verður sama reiðhjól á báðum vegalengdum og mun keppnisstjórn sjá um flutning.

Boðið verður upp á drykki við lok sundsins, á Merkjahrygg, við bæinn Eyjólfsstaði og við lok keppni.  Keppendur fá síðan hressingu og frítt í sund eftir keppnina við íþróttahúsið á Djúpavogi .

Keppnisgjald er 3.500 kr. og er skráning hafin á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Innifalið í keppnisgjaldi er hressing,  aðgangur að sundlaug og íþróttahúsi auk þess sem keppendur fá bol keppninnar. Keppendur þurfa að skrá sig fyrir fimmtudaginn 10. júní nk.  Allar upplýsingar eru veittar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Gúmmiskóaganga á vegum Ferðafélags Djúpavogs:

Hefst við Íþróttahúsið á Djúpavogi kl. 18:00.  Gengið verður út Vörðuna sem leið liggur með sjónum út í Hvítasand. Frá Hvítasandi með ströndinni út í Hvaley. Frá Hvaley að Sandey, skoðaður hellirinn í Sandey. Frá Sandey er haldið að flugbrautinni og að íþróttahúsinu þar sem gangan endar. Um er að ræða 2 ½ til 3ja tíma göngu. Gangan er fyrir fólk á öllum aldri.

Markmið er að sem flestir verði í gúmmískóm eins og forfeður okkar þegar þeir gættu að fé sínu sem hélt sig á þessu svæði.

Frítt er í gönguna og ekki þarf að skrá sig.

Sundlaug Djúpavogs verður opin til miðnættis, og er göngufólki boðið ókeypis í sund..

Sunnudagur, 1. júlí 2012

Tásutölt

Hefst kl. 10:00 úti á Söndum við enda flugbrautarinnar. Ræst er í hlaupið við Langhólma. Hlaupið er tásunum einum saman, "berfættur" Boðið er upp á tvær vegalengdir:
2  km     Tölt frá Langhólma að Kiðhólma í fjöruborðinu og sömu leið til baka.
4 km      Tölt frá Langhólma að Kiðhólma, í fjöruborðinu og sömuleið til baka. Haldið áfram í fjöruborðinu að Sandey og til baka aftur að Langhólma.

Tásutölt er fyrir alla fjölskylduna og verða verðlaun afhent  fyrir  fjölmennustu fjölskylduna, yngsta  barnið og elsta þátttakandann. Verðlaun verða afhent í sundlaug Djúpavogs eftir göngu. Frítt er í Tásutöltið og ekki þarf að skrá sig sérstaklega.

Keppendur og aðstandendur fá frítt í sundlaug Djúpavogs á eftir.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ