Tvö jafntefli hjá knattspyrnuliðum Hattar um helgina

Bæði karla og kvennalið Hattar  spiluðu heimaleiki  á laugardaginn í blíðskaparveðri á Fellavelli. Þetta voru fyrstu heimaleikir liðanna í Íslandsmótinu þetta árið.

Það var hugur í bæði leikmönnum og áhorfendum enda var vel mætt í brekkuna og stuðningur við liðin til fyrirmyndar.

Karlalið Hattar tók á móti Haukum og mættu ákveðnir til leiks. Hattarmenn höfuðu undirtökin í fyrri hálfleik en miðverðir Hauka Sverrir Garðarson og Valur Fannar Gíslason voru okkar mönnum erfiðir, staðan í hálfleik 0-0.
Í seinni hálfleik héldu strákarnir okkar áfram góðri spilamennsku og þrátt fyrir að Stefán Þór hafi fengið sitt annað gula spjald um miðjan síðari hálfleik og þar með brottvísun þá var ekki að sjá að strákarnir væru einum færri.

Það dróg þó heldur af Hattarmönnum undir lok leiksins og björguðu þeir tvisvar sinnum á línu eftir barning í teig Hattar,lokatölur 0-0.

Kvennalið Hattar tók á móti ÍA á Fellavelli í síðari leik dagsins. Skagastúlkum er spáð mikilli velgengni í sumar og mátti því búast við hörkuleik.

Stelpurnar okkar börðust vel og fengu fín færi ásamt því að verjast af krafti. Tara E.Macdonald spilaði fyrsta leik sinn í marki Hattar og virðist vera hörku leikmaður. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli 0-0.

Nánari umfjöllun um leikina má finna á hér heimasíðu Hattar.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok