Meistaramót UÍA í frjálsum íþróttum
Meistaramót UÍA í frjálsum íþróttum fyrir 11 ára og eldri verður haldið á Vilhjálmsvelli sunnudaginn 20. maí og hefst kl 12.
Keppt í hástökki, langstökki, kúluvarpi, 60 m hlaupi og 600/800 m hlaupi, í flokkum stúlkna og pilta 11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri.
Verðlaun veitt fyrir fyrstu þrjú sæti í hverri grein. Þátttökugjald 1000 kr óháð greinafjölda og allir velkomnir.