Bjartur 2012 Rathlaup í Jökuldalsheiði
UÍA, Austurför og Fljótsdalshérað standa fyrir keppninni Bjartur 2012 Rathlaup í Jökuldalsheiði 30. júní - 1. júlí.
Um er að ræða liðakeppni í þremur flokkum:
Fjölskyldurathlaup 4 klst. (3-5 í liði)
10 klst. rathlaup (2-3 í liði)
24 klst. rathlaup (2-3 í liði)
Rathlaupið reynir á ýmsa þætti s.s. rötun, kortalestur, hreyfingu, úthald og samvinnu. En hvert lið
fer yfir á sínum hraða.
Keppnisfyrirkomulag:
Einni klukkustund fyrir ræsingu fá liðin í hendur kort með ámerktum punktum. Hver punktur á kortinu stendur fyrir stað sem auðkenndur er með flaggi og þar er að finna gatara/stimpil sem liðin nota til að gata/stimpla á þar til gert liðsblað og staðfesta þannig komu sína á staðinn.
Staðirnir gefa mis mörg stig eftir því hversu erfitt er að finna eða komast á viðkomandi stað og sigrar það lið sem nær flestum stigum. Liðin ákveða fyrirfram hvaða leið þau ætla að fara og hvaða punkta þau ætla að sækja og gefa umsjónarmanni keppninnar þá áætlun upp. Ekki þarf að fylgja áætluninni nákvæmlega, en öryggis keppenda vegna er gott að fylgja henni sem mest.
Þátttakendur í fjölskyldurathlaupi verða ræstir kl 12:00 sunnudaginn 1. júlí.
Keppendur í 10 klst rathlaupi verða ræstir kl 8:00 sunnudaginn 1. júlí
Keppendur í 24 klst rathlaupi verða ræstir kl 18:00 laugardaginn 30. júní
Fundað verður með keppendum klukkustundu áður en hvert rathlaup hefst.
Keppni hefst og lýkur við Sænautasel og þar verður bækistöð fyrir keppendur og starfsfólk. Þangað geta keppendur komið og gætt sér á kraftmikilli kjötsúpu á meðan á rathlaupinu stendur.
Keppnisgjöld:
Fjölskyldurathlaup 4 klst. 2000 kr. á lið.
10 klst. rathlaup 10.000 kr. á lið
24 klst. rathlaup 15.000 kr. á lið.
Innifalið kjötsúpa, aðgangur að safninu í Sænautaseli og hjólabátum,
gleði og gaman að keppni lokinni.
Skráningarfrestur:
Skráningar berist á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Senda skal upplýsingar um nafn liðs, í hvaða tímalengd á að keppa, fullt nafn og kennitölur allra liðsmanna, ásamt netföngum og símanúmerum liðsfélaga.
Skráningarfrestur í 10 og 24 tíma hlaupin er til 20. júní.
Í 4 klst hlaup er hægt að skrá þar til kl. 10:30 1. júlí.
Allir keppendur í fjölskylduflokki fá viðurkenningu fyrir þátttökuna en glæsileg verðlaun eru veitt fyrir stigahæsta liðið í 10 og 24 klst hlaupunum.
Björgunarsveitin Jökull sér um öryggismál keppninnar og verður með vakt á svæðinu.
Jökuldalsheiðin:
Á 19. öld og fram á þá 20. byggðust upp fjölmörg býli í Jökuldalsheiði og nágrenni. Íbúar Heiðarinnar voru um 120 talsins þegar mest lét en við Öskjugos 1875 lagðist byggðin í eyði og margir ábúendur fluttust vestur um haf. Byggð í heiðinni byggðist þó upp aftur og fór síðasti bærinn í eyði 1946.
Flestir Íslendingar þekkja söguna um Bjart í Sumarhúsum í skáldverkinu „Sjálfstætt fólk” eftir Halldór Kiljan Laxness. Hún lýsir lífsbaráttu sjálfstæðs kotbónda á afskekktri heiði. Margir telja að fyrirmynd sögunnar sé Heiðabyggðin á Jökuldalsheiði.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa UÍA í síma 4711353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..