Vormót FSÍ á Egilsstöðum
Þann 12.-13. maí næstkomandi mun fimleikadeild Hattar vera með Vormót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum.
Það er mikill heiður að fá að halda stórt mót á vegum Fimleikasambands Íslands og viðurkenning fyrir það starf sem fram fer hjá fimleikadeild Hattar á Egilsstöðum.
Fimleikadeild Hattar á von á 570 keppendum alls staðar af landinu. Keppt verður í fjórum flokkum á mótinu: 5 flokkur ( 9-12 ára ) 4 flokkur ( 12-14 ára ) 3 flokkur ( 15-18 ára ) opinn flokkur ( 18 ára og eldri ).
Fimleikadeild Hattar hvetur alla sem hafa áhuga á fimleikum að koma og horfa á skemmtilega íþrótt þessa helgi og hvetja sitt fólk.
Upplýsingar um tímasetningar á mótinu er að finna á heimasíðunni http://hottur.is/index.php/fimleikar
Aðgangseyrir á mótið er 600 kr fyrir 16 ára og eldri.