Vel heppnuð Björnsmót og Fjarðarálsmót á skíðum
Í lok síðustu viku var mikið um að vera hjá skíðafólki hér eystra og Stafdalur iðaði af lífi.
Þann 26. apríl fór þar fram Björnsmót fyrir 9 ára og yngri og daginn eftir Austurlandsmót (Fjarðaálsmót) fyrir 13 ára og eldri og síðari hluti Björnsmóts fyrir 10 ára og eldri.
Framkvæmd gekk vel, veðrið var hið besta og keppendur og áhorfendur nutu sín í brekkunum.
Úrslit mótsins má sjá hér á heimasíðu Skíðafélagsins í Stafdal og hér má finna myndir af mótunum.