Tvö glímubrons austur af Íslandsglímunni.
Síðastliðna helgi var keppt um Freyjumenið og Grettisbeltið á Ísafirði. Sex bestu glímukonur landsins kepptu um Freyjumenið og tólf bestu glímumennirnir um Grettisbeltið. Fjórir keppendur frá UÍA tóku þátt og sýndu fallegar og snarpar glímur.
Eva Dögg Jóhannsdóttir og Hjalti Þórarinn Ásmundsson náðu bæði á verðlaunapall, hrepptu 3. sætið, og Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Ásmundur Hálfdán Ásmundsson náðu bæði flottum árangri en þau höfnuðu í 4. og 6. sæti.