Málþing um útivist
Ungmennaráð Fjarðabyggðar býður ungmennaráðum á Austurlandi til málþings um útivist í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði, mánudaginn 16. apríl milli kl. 17:00 og 19:00. Sérstakur gestur er Bård Meløe, leiðtogi í Vesterålen friluftsråd, en hann er þekktur innan norsku íþróttahreyfingarinnar sem sundkappi og sérstakur áhugamaður um hjólreiðar og fjallamennsku.
Eftir fundinn býður Fjarðabyggð ungmennaráðunum til kvöldverðar 19:00-20:00 og síðan verður málþingið opnað kl. 20:00
Málþingið er öllum opið eftir kl. 20:00, en þá mun Bård Meløe flytja erindi um gildi útivistar og fjölbreytta útivistarmöguleika. Ungmennaráð Fjarðabyggðar vonar að ungmennaráð Fljótsdalshéraðs og UÍA geti nýtt sér boðið og tekið þátt í málþinginu.
Við hvetjum áhugafólk um útivist að láta þetta ekki framhjá sér fara.