Þróttur sigrar í hörkuleik
Kvennalið Þróttar í blaki lagði HK, 3-0 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitarimmu Íslandsmeistaramótsins, í Neskaupstað í gær. Leikurinn var spennandi og nánast jafnt á öllum tölum í tveimur fyrstu hrinunum.
Þróttur hafði þó betur í þeim báðum 25-22. Í þriðju hrinu virtist sem Þróttur myndi fara létt með HK liðið þegar staðan var orðin 22-16. HK liðið beit þá frá sér og jafnaði leikinn og komst yfir 23-24. Okkar stelpur hirtu næstu þrjú stig sem tryggði þeim hrinu 3 og þar með leikinn, 3-0.
Næsti leikur liðanna fer fram syðra á morgunn.
Við óskum okkar stelpum góðs gengis.