Opið fyrir umsóknir í Sprett afrekssjóð UÍA og Alcoa
Vorúthlutun úr Spretti afrekssjóði UÍA og Alcoa verður í fyrri hluta maí mánaðar. Umsóknarfrestur er til 1. maí. Íþróttafólk, þjáfarar og aðildarfélög UÍA eru hvött til að sækja um til góðra verka.
Veittir eru ferns konar styrkir úr sjóðnum; Afreksstyrkir, Iðkendastyrkir, þjáfarastyrkir og félagastyrkir. Alls er veitt 1,4 milljónum úr sjóðnum á ári hverju.
Úthlutunarreglur má finna hér á heimasíðu UÍA undir Sprettur og þar er einnig að finna umsóknareyðublöð.