Hattarstrákar gera það gott á Íslandsmóti í taekwondo
Íslandsmótið í taekwondo bardaga var haldið síðastliðna helgi á Ásbrú, Reykjanesbæ. Tíu félög sendu keppendur á mótið, en rúmlega 70 keppendur voru skráðir, þar af átti Höttur tvo keppendur þá Gest Bergmann Gestsson og Daníel Hólm Skúlason. Þeir stóðu sig báðir með miklum sóma. Gestur hreppti silfur í cadet 1 og Daníel brons í sömu grein.
Heildarúrslit mótsins má sjá hér á heimasíðu Taekwondofélags Keflavíkur