Vopnfirðingar taka á því í ræktinni, í boði HB Granda
Vopnajfarðarhreppur og HB Grandi hf. hafa gert með sér samkomulag þess efnis að HB Grandi býður Vopnfirðingum öllum frítt í líkamsrækt íþróttahússins frá og með mánudaginn 26. mars og út árið 2012.
Auk þess mun Vilhjálmur Vilhjálmsson íþróttafræðingur vera til taks í líkmasræktarsalnum. Opnunartími íþróttahússins verður lengdur, svo sem flestir komist að til að nýta þetta góða tilboð. Flott framtak og gaman verður að sjá hversu stæltir og hraustir Vopnfirðingar verða í árslok.
Nánari upplýsingar um samkomulagið má finna hér á heimasíðu Vopnafjarðahrepps.
Hér á myndinni má sjá þá Vilhjálmi Vilhjálmssyni, f. h. HB Granda hf., og Þorsteini Steinssyni, sveitarstjóra undirrita samkomulag þessa efnis.