Lovísa Hreinsdóttir hlýtur bronsmerki FRÍ
Frjálsíþróttasamband Íslands hélt sitt árlega þing um síðastliðna helgi á Selfossi. Þar voru afhent starfsmerki sambandsins til einstaklinga sem hafa lagt mikið og óeigingjarnt starf af mörkum fyrir hreyfinguna. Lovísa okkar Hreinsdóttir sem hefur um árabil starfað ötullega að framgangi frjálsra íþrótta á Austurland , bæði innan frjálsíþróttadeildar Hattar og frjálsíþróttaráðs UÍA, var á meðal þeirra sem hlutu Bronsmerki FRÍ fyrir störf sín.
Yfirlit yfir alla sem hlutu starfsmerki á þinginu má finna hér.
Á myndinni hér til hliðar má sjá Lovísu ásamt öðrum bronsmerkjahöfum. Myndina tók Jónas Egilsson.