Kajakaklúbburinn KAJ á kvöldvöku í Kreml
Miðvikudaginn 21. mars kl 20:00 verður Kajakfélagið KAJ með, kynningu á kajaksprotinu og starfi félagsins, á kvöldvöku í Kreml undir yfirskriftinni Kajakróður sem ferðamáti. Ari Benediktsson formaður KAJ hefur framsögn og sýnir myndir.
Þetta framtak er liður í mánaðarlegum kvöldvökum, starfsstöðvar ÞNA í Kreml, þar sem fjallað er um efni tengd byggðarlaginu og mannlífinu. Kvöldvökugestir hvattir til að koma með innlegg og ábendingar. Öllum er velkomið að koma, fræðast um kajaksportið og þiggja kaffi og veitingar.