Fræðslufundur um dómgæslu 17. mars
Í tengslum við leik Hattar og Fjölnis sem fer fram í Fjarðabyggðahöllinn á morgunn kl 14:00 mun Kristinn Jakobsson FIFA dómari halda fræðslufund um dómgæslumál.
Fræðslufundurinn sem er á vegum KSÍ verður í Grunnskólanum á Reyðarfirði þar sem Kristinn mun ásamt reyndum aðstoðardómara fara yfir helstu þætti dómgæslunnar.
Hér er kjörið tækifæri fyrir dómara og áhugamenn um dómgæslu að auka við þekkingu sína.
Dagskrá.
12:00-13:30 Fræðslufundur í barnaskólanum á Reyðarfirði.
14:00-15:45 Horft á leik Hattar og Fjölnis. Leiðbeinandi greinir leikinn meðan á honum stendur.
16:00-17:00 Leikurinn gerður upp. Kristinn situr fyrir svörum.
17:00 Dagskrárlok.
Allir starfandi dómarar og áhugamenn um dómgæslu eru hvattir til þess að mæta.
Skráning er hafin á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.