Glímufólk UÍA gerir það gott
Þann 3. mars síðastliðinn fór fram 3. og síðasta umferð í Meistaramótaröð Glímusambands Íslands. Lið UÍA hefur staðið sig vel að vanda í vetur og er nú í efsta sæti félagakeppninnar fyrir Íslandsglímuna. Hjörtur Elí Steinþórsson, Ásmundur Hálfdán Ásmundsson og Þuríður Lillý Sigurðardóttir sigrðu öll í sínum flokkum á mótinu. UÍA sigraði í stigakeppni kvenna á mótinu með 45 stig, varð í þriðja sæti í stigakeppni karla með 28,5 stig, í öðru sæti í stigakeppni í unglingaflokki með 34 stig og sigraði í heildarstigakeppni félaga með 107,5 stig.
Óskum við glímufólkinu okkar innilega til hamingju með árangurinn.
Heildarúrslit mótsins má sjá hér á heimasíðu Glímusambands Íslands.