Allir á völlinn. Áfram Höttur

Í kvöld tekur Höttur á móti Breiðablik í lokaumferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Okkar menn hafa þegar tryggt sé sæti í úrslitakeppni um sæti í úrvalsdeild á næsta ári, en með sigri í kvöld er möguleiki á að ná 2. sæti í keppninni og þar með heimaleikjarétti í gegnum úrslitakeppnina. Leikurinn hefst klukkan 18.30 í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum.
Við hvetjum sem flesta til þess að mæta í íþróttahúsið í kvöld, hvetja strákana til dáða og samfagna góðum árangri í vetur.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ