Allir hlæja á Öskudaginn....
Ýmsar furðuverur hafa lagt leið sína á UÍA skrifstofuna það sem af er degi, margar þeirra ráku þar upp stór augu er glaðhlakkaleg gulrót tók á móti þeim.
Gulrótin hlýddi hugfangin á fagran söng gestanna og þakkaði fyrir sig meðal annars með gulrótum, enda eru þær prýðis íþróttanammi og eiga vel við á Öskudegi sem og öðrum dögum.
UÍA vonar að börn og fullorðnir á Austurlandi njóti dagsins og bursti tennurnar vel í kvöld.