Björgvin Stefán íþróttamaður Leiknis 2011
Margt var um manninn á Sólarkaffi Leiknis síðastliðinn sunnudag. Þar komu Leiknismenn saman að venju, gæddu sér á veitingum og veittar voru viðurkenningar fyrir afrek ársins 2011.
Íþróttamaður ársins var Björgvin Stefán Pétursson en hann var líka valinn knattspyrnumaður ársins 2011. Fannar Bjarki Pétursson var valinn efnilegstur í knattspyrnu og fékk Valþórsbikarinn.
Hér á myndinni má sjá Björgvin Stefán íþróttamann Leiknis 2011.