Óttar Steinn íþróttamaður Hattar 2011

Þann 6. janúar fór fram Þrettándagleði Fljótsdalshéraðs og Hattar með hefðbundnu sniði. Kyndlaganga lagði af stað kl 17:30 frá íþróttahúsinu og gengið var í Tjarnargarðinn þar sem brenna var tendruð. Met fjöldi var við athöfnina og í göngunni en ágætis veður var. Davíð Þór Sigurðarson, formaður Hattar setti athöfnina með ræðu um starf Hattar 2011 og Karlakórinn Drífandi söng nýárslög. Einnig var Héraðs og Borgafjarðardeild Rauða Kross Íslands afhendur styrkur sem safnaðist við leik á milli meistaraflokka félagsins í knattspyrnu og körfubolta. En leikurinn fór fram 28. desember og safnaðist yfir 200 þúsund krónur.

 

Verðlaunaafhending íþróttamanna ársins var kynnt en það var Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs ásamt formanni Hattar, Davíð Þór Sigurðarsyni sem sáu um afhendinguna. Eftir afhendingu var síðan glæsileg flugeldasýning sem Björgunarsveitin á Héraði sá um að framkvæma.
Íþróttamaður Hattar árið 2011 var Óttar Steinn Magnússon.
Óttar hefur verið lykilmaður sem miðvörður Mfl Hattar síðustu ár. Síðasta ár var hann fyrirliði og spilaði stórt hlutverk þegar liðið vann sig upp í 1-deild. Hann er með eina bestu æfingarsóknina og góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og sýnir að með reglubundnu líferni og góðri ástundun er hægt að ná langt sem íþróttamaður. Hann hefur unnið gott starf utan vallar sem innan.
Í öðrum greinum voru eftirtaldir einstakilngar fyrir valinu þetta árið.
Blakmaður : Særún Kristín Sævarsdóttir
Fimleikamaður: Alexandra Sigurdórsdóttir
Frjálsíþróttamaður : Örvar Þór Guðnason
Knattspyrnumaður : Óttar Steinn Magnússon
Körfuboltamaður : Eysteinn Bjarni Ævarsson
Sundmaður : Jóhanna Malen Skúladóttir
Íþróttafélagið Höttur vill þakka eftirtöldum styrktaraðilum fyrir stuðninginn vegna framkvæmdar þrettándagleði 2011, Brúnas – Innréttingar , Hitaveita Egilsstaða og Fella, Landsbankinn.

 

 

Á myndinni hér til hliðar má sjá þá íþróttamenn sem verðlaunaðir voru á Þrettándagleðinni, á myndina vantar Jóhnnu Malen og Óttar Stein.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok