Breytingar á mótaskrá UÍA í frjálsum
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur fært MÍ 15-22 ára sem vera átti um miðjan janúar yfir þá helgina sem Meistaramót UÍA átti að fara fram 4. febrúar.
Meistaramót UÍA fyrir 11 ára og eldri verður af þessum sökum laugardaginn 28. janúar í Fjarðahöllinni og Ávaxtamót UÍA færist til um einn dag og verður sunnudaginn 29. janúar í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði.
Það er því óhætt að segja að síðasta helgin í janúar verði frjálsíþróttahelgi með meiru hér eystra.