Sprettur sendir gleðigjöf með Landflutningum

Landflutningar Samskip bjóða nú upp á frábært jólapakkatilboð sem ber nafnið Gleðigjafir. Hægt er að senda jólagjafir hvert á land sem er fyrir 750 kr, og rennur andvirði flutningsgjalda til og frá Austurlandi óskipt til barna- og unglingastarfs UÍA. Sprettur sporlangi nýtti tækifærið í morgunn og sendi eina gleðigjöf af stað með Landflutningum.

Við hvetjum alla til að nýta þetta kostaboð og styrkja barna- og unglingastarf UÍA í leiðinni.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ