Gleðigjafir Landflutninga til styrktar barna og unglingastarfi UÍA
Landflutningar Samskip bjóða nú upp á frábært jólapakkatilboð sem ber nafnið Gleðigjafir. Hægt er að senda jólagjafir hvert á land sem er fyrir 750 kr, og rennur andvirði flutningsgjalda til og frá Austurlandi óskipt til barna- og unglingastarfs UÍA.
Við hvetjum alla til að nýta sér þetta tilboð og styðja í leiðinni við barna- og unglingastarf á Austurlandi.
Endilega látið fréttir af Gleðigjöfunum berast sem víðast.