Úrvalshópur UÍA í sundi

Sundráð UÍA hefur hleypt af stokkunum úrvalshópi, sem ætlaður er til að styðja við efnilega sundmenn og hvetja þá til að ná enn lengra í íþrótt sinni.

Hópurinn er samstarfsverkefni sundþjálfarara á sambandssvæði UÍA ásamt Sindra á Hornafirði.

 

Á Bikarmóti UÍA um síðustu helgi var valið í hópinn og hann kallaður saman í fyrsta sinn.  Ráðgert er að hópurinn muni hittast í æfingabúðum, fá fyrirlestra og sækja sækja stærri mót utan fjórðungs. Óskar Hjartarson þjálfari sunddeildar Hattar, er yfirþjálfari hópsins.

Í hópnum eru

Bergrún Lilja Begsdóttir, Hetti
Hildur Birta Árnadóttir, Hetti
Daniel Diago Guillen, Hetti
Jóhanna Malen Skúladóttir, Hetti

Anný Mist Snjólfsdóttir, Neista
Bjarni Tristan Vilbergsson, Neista
Þórunn Amanda Þráinsdóttir, Neista
Kamilla Marín Björgvinsdóttir, Neista

Eva Dröfn Jónsdóttir, Leikni
Gígja Guðnadóttir, Leikni
Freydís Guðnadóttir, Leikni

Ragna Steinunn Arnarsdóttir, Sindra
Ásdís Pálsdóttir, Sindra
Sigurborg Eiríksdóttir, Sindra
Guðjón Vilberg Sigurbjörnsson, Sindra.

Á Bikarmótinu voru hvorki keppendur frá Þrótti né Austra en viðbúið að fulltrúar frá þeim félögum bætist við áður en langt um liður.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ