Opið hús hjá Kaj í kvöld
Í tilefni af Dögum myrkurs ætla kajakmenn hjá Kajakklúbbnum Kaj að opna dyr Þórsskúrs kl 20:00 í kvöld og bjóða gesti og gangandi velkomna.
Þar verður Myndasýning og kaffisala á vegum 9. bekkjar Nesskóla og hvetjum við alla til að líta við í fjörunni.
Einnig gefst áhugasömum færi á að kaupa þar nýútkomna bók um kajakmennsku á Íslandi, þá fyrstu sinnar tegundar. En Kayakklúbburinn í Reykjavík gaf fyrir skemmstu út bók Örlygs Sigurjónssonar Sjókayakar á Íslandi og er hún til sölu hjá Kaj
Sjá nánar á heimasíðu Kaj