Er byggðavandi skortur á félagsþroska?

 

Framfarafélag Fljótsdalshéraðs heldur upp á 25 ára afmæli sitt í dag með málþingi þar sem yfirskriftin er „Er byggðavandinn skortur á félagsþroska.“  Dagurinn hefst á aðalfundi félagsins klukkan 15:00 á Hótel Héraði á Egilsstöðum. Málþingið sjálft hefst að honum loknum klukkan 16:30. Þar verður m.a erindi frá UÍA. Dagskrá þess er eftirfarandi:
1.  Ávarp: Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs
Létt afmæliskaffi í boði afmælisbarnsins
1.  Veiting viðurkenningarinnar „Frumkvæði til framfara“
2.  Dæmi um hugmyndavinnu FFF, sem bar ávöxt
Pálmi Kristinsson, framkvæmdastjóri
4.  Framsöguerindi gesta:
•         Endalok höfuðborgarstefnunnar?
Þóroddur Bjarnason, formaður nýrrar stjórnar Byggðastofnunar
•         Gildi áhugamannafélaga í nútíma þjóðfélagi.
Hildur Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA)
5.  Umræður um framsögur og yfirskriftina: Er byggðavandinn skortur á félagsþroska
•         Innleiðing eftir þörfum: Þórarinn Lárusson, formaður FFF
Fundarstjóri: Jónas Þór Jóhannsson, fyrsti formaður FFF

Allir velkomnir í afmælið, enda er fundurinn öllum opinn.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok