Sambandsþing UÍA 2023
Sambandsþing UÍA 2023 verður haldið sunnudaginn 16. apríl og mun þingið fara fram í Neskaupstað þetta árið. Þingið hefst kl. 12:00 og það fer fram í Nesskóla.
Viljum minna á að einungis þau félög sem mæta á þingið og skila inn gögnum í gagnagrunn ÍSÍ eiga rétt á Lottó úthlutun 2024.
Dagskrá þingsins verður með hefðbundnu sniði en hún verður kynnt nánar þegar nær dregur.
Eyðublöð til tilnefningar á eftirfarandi tiltum hafa verið send á aðildarfélög UÍA og skilafrestur á tilnefningum er 4. apríl
- Íþróttamaður UÍA 2022
- Hermannsbikarinn 2022
Einnig var sent kjörblað á öll aðildarfélög sem fulltrúum félaganna ber að skila inn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða afhenda við upphaf þingsins.
Með von um góða mætingu á sambandsþingið og skil á tilnefningum.